Á íslensku · frjáls hugbúnaður · byggt á Arch Linux
Arch, á íslensku.
BifrOSt er íslensk vinnustöð fyrir hugbúnaðarþróun, byggð á Arch Linux með COSMIC-skjáborðinu. Ræstu kerfið af USB-lykli, prófaðu það og settu það upp til daglegra nota.

Sjáðu kerfið áður en þú setur það upp.
Skjámyndirnar eru teknar í BifrOSt. Þær sýna kerfið ræst af USB-lykli, uppsetningarforritið og uppsett COSMIC-vinnuumhverfi.

01 / 03
Prófaðu COSMIC á íslensku
Ræsanlegt vinnuumhverfi með íslenskum sjálfgefnum stillingum og myndefni sem var sérstaklega gert fyrir BifrOSt.
Arch Linux, COSMIC og íslenskar sjálfgefnar stillingar.
BifrOSt notar hvorki sérsniðinn kjarna né annan pakkastjóra. Grunnkerfið kemur frá Arch Linux; BifrOSt bætir við íslenskum stillingum, útliti og uppsetningarforriti.
Settu fyrst upp einfalt grunnkerfi og veldu síðan þau þróunarverkfæri sem þú þarft.
- Rust
- Gámar
- Vefþróun
- Python
Uppsetning BifrOSt 0.2 eyðir öllum markdisknum.
Við uppsetningu er öllum disksneiðum og öllum gögnum á staðfestum markdiski eytt. Ekki er hægt að setja BifrOSt upp samhliða öðru stýrikerfi eða skipta disknum handvirkt í disksneiðar.
- Áður en þú ræsir kerfiðTaktu öryggisafrit, sannreyndu að hægt sé að lesa það og aftengdu alla diska sem ekki má eyða.
- UEFI-stillingarNotaðu x86_64 UEFI og slökktu á Secure Boot.
- Áður en disknum er eyttSannreyndu gerð disksins og annaðhvort raðnúmer hans eða WWN. Ekki treysta eingöngu á slóð tækisins.
Sæktu v0.2.2.
v0.2.2 er nýjasta uppsetningarmyndin (ISO) sem hefur komið út. Sannreyndu skrána sem þú sækir og lestu öryggisleiðbeiningarnar áður en þú velur markdisk.